Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.12.2017
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.
Færð á vegum
Á Suður- og Suð-vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka og hálkublettir.
Hálka er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og snjóþekja á stöku stað. Flughált er á Bjarnarfjarðarhálsi, eins frá Patreksfirði að Kleifaheiði og frá Hjallahálsi að Gilsfirði. Ófært er yfir Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi en meira um hálkubletti og éljagang á norð-austurlandi. Skafrenningur er á Fjöllunum.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi en snjóþekja á stöku stað. Með suð-austurströndinni er allvíða hálka eða hálkublettir á vegum. Flughálka er milli Skaftafells og Jökulsárlóns. Ófært um Öxi en þæfingur á Breiðdalsheiði.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.