Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 13.11.2018

13.11.2018 16:50

Færð og aðstæður

Vesturland: Hálkublettir eru í Borgarfirði og á Holtavörðuheiði.

Vestfirðir: Hálka á Hálfdán og Dynjandisheiði en hálkublettir á Hrafnseyrarheiði.

Norðurland: Flestir vegir auðir en þó eru hálkublettir á Öxnadalsheiði.

Norðausturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og eitthvað um éljagang á vegum inn til landsins en autt með ströndinni.

Austurland: Krap á Fjarðarheiði og hálkublettir á Öxi en vegir annars greiðfærir. Þæfingsfærð er á Mjóafjarðarheiði.

Umferðartafir við Svínafellsá í Öræfum

Vegna vinnu við endurbætur á brúnni yfir Svínafellsá í Öræfum má  búast við talsverðum umferðartöfum allt að 40 mínútum í senn fram á fimmtudag. Umferð er stýrt með umferðarljósum i gegnum vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63)

Ásþungi er takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi ( 63) frá Hvassanesflugvelli ađ Helluskarði (gatnamót Vestfjarðavegar (60) og Bíldudalsvegar).

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.

Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði

Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng er tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði en á Dynjandisheiði er minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.

Hálendið

Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.