Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

7.3.2017 15:55

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi er að mestu greiðfært en þó eru hálkublettir á nokkrum köflum, einkum í uppsveitum.

Það er að mestu autt á Vesturlandi en þó er hálka á nokkrum leiðum í uppsveitum Borgarfjarðar og á Heydal og Skógarströnd. Víða er hálka eða hálkublettir á fjallvegum á Vestfjörðum en þar er mikið autt á láglendi.

Enn eru allvíða hálkublettir á Norður- og Austurlandi en þar er þó óðum að taka upp. Greiðfært er með suðausturströndinni.

Múlagöng

Vegna vinnu í Múlagöngum dagana 7 mars til 8 mars má reikna með umferðartöfum þar frá klukkan 21:00 til 06:00 að morgni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Snæfellsnesvegi (54) frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.