Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.9.2018

12.9.2018 8:18

Framkvæmdir

Vegna viðgerða á brúnni yfir Rauðalæk vestan við Hellu verður annari akreininni lokað frá og með kl. 20:00 í dag 12. sept fram á hádegi á morgun 13. sept.

Tafir á umferð á þjóðvegum nr.30 og 32

Tafir verða á umferð á þjóðvegi nr. 32, Þjórsárdalsvegi, vegna fjárrekstra fimmtudaginn 13. september, frá Búrfellsvirkjun og að Fossnesi frá kl. 11:00 – 21:00 en hjáleiðir þó færar að hluta.

Föstudaginn 14. september á þjóðvegi nr. 32  frá Fossnesi að Skaftholtsréttum kl. 08:00 – 13:00 en hjáleiðir eru þó færar að hluta. Þann sama dag, 14. Sept.  verður  Þjórsárdalsvegur  nr. 32 frá Þrándarholti  að  Sandlækjarholti, ( Sandlækjarmýri) lokaður  frá kl. 16:00 – 18:00, hjáleið aðeins fær um Landsveit!

Laugardaginn 15. september gætu orðið smávægilegar tafir á vegi  nr. 30 Skeiðavegi kl. 13:00 og eitthvað fram eftir degi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu http:// www. skeidgnup.is

Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Kísilvegurinn (87) er lokaður

Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu. 

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.