Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.7.2018
Lokun á Þingvöllum
Vegna uppsetningar vegriðs við Vallaveg (nr. 361) á Þingvöllum sem liggur af Þingvallavegi að Þingvallavatni er þeim vegi lokað yfir daginn bæði í dag og á morgun. Vallavegi er lokað fyrir allri umferð í suðurenda hans við Þingvallaveg. Einnig verður lokað fyrir umferð fólksflutningabíla við Silfru en ökumenn lítilla bíla munu þó komast að veiðistöðum við vatnið.
Hópbifreiðar munu áfram geta ekið frá þjónustumiðstöð að bílastæði á Valhallarreit (P5) og ökumenn lítilla bíla munu komast að veiðistöðum við vatnið.
Tafir í Múlagöngum í nótt
Vegna vinnu í Múlagöngum í nótt (aðfaranótt 13. júlí) má reikna með umferðartöfum þar frá miðnætti og fram eftir nóttu.
Malbikun
Í dag, fimmtudaginn 12. júlí, á að malbika
hringtorg í Grindavík við Gerðavelli og báðar akreinar á Víkurbraut sunnan við
hringtorgið. Veginum og hringtorginu verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast
má við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 08:30 og 16:00.
Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Umferðarstýring á Þingvöllum
Upplýsingar um umferðarstjórnun í tengslum við hátíðarfund Alþingis 18. júlí á Þingvöllum, sjá nánar hérLokun á Ölfusárbrú við Selfoss
Vegna viðgerða verður brúin yfir Ölfusá lokuð í viku um miðjan ágúst. Sjá nánar hérUmferðartafir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir gætu orðið lítilsháttar umferðartafir í Breiðadalslegg (til/frá Önundarfirði) yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en nú fer að styttast í verklok. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.