Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.5.2018

12.5.2018 15:22

Hálendisvegir að vori

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.