Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.3.2018

12.3.2018 11:38

 

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum og við Vík í Mýrdal.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir í Borgarfirði en hálkublettir eða hálka á Snæfellsnesi og í Dölum.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálka er á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir víða í Skagafirði.  Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og með suðausturströndinni  er hálka í Hvalnesskriðum og hálkublettir að Höfn en annars að mestu greiðfært.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.