Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum, á Suðurstrandavegi og við Vík í Mýrdal.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir í Borgarfirði en hálkublettir eða hálka á Snæfellsnesi og í Dölum.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum.
Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálka er á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir víða í Skagafirði. Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum.
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og með suðausturströndinni er hálka í Hvalnesskriðum og hálkublettir að Höfn en annars að mestu greiðfært.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.