Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.3.2018

12.3.2018 7:45

 

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum og Suðurstrandavegi.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir í Borgarfirði en hálka eða hálkublettir á Snæfellsnesi og í Dölum. Ófært er á Útnesvegi en unnið að hreinsun.

Það er víða hálka, hálkublettir eða snjóþekja á  Vestfjörðum en þæfingsfærð á Þröskuldum. Ófært er á Klettshálsi en unnið að hreinsun.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálka er á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir víða í Skagafirði. Þæfingsfærð er á Öxnadalsheiði en unnið er að hreinsun. Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum en þungfært á Hólasandi.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austurlandi og éljagangur eða snjókoma á Fjörðunum. Það er hálka í Hvalnesskriðum og hálkublettir á köflum með suðausturströndinni.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.