Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.3.2018

12.3.2018 6:48

 

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum. 

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir sunnantil en meira um hálkubletti er norðar dregur. Snjóþekja er á Vatnaleið og þæfingsfærð á Útnesvegi. Ófært er á Fróðárheiði en unnið að hreinsun.

Það er víða hálka, hálkublettir eða snjóþekja á  Vestfjörðum en þæfingsfærð á Þröskuldum.

Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálka er á Þverárfjalli og hálkublettir í Skagafirði. Þæfingsfærð er á Öxnadalsheiði en unnið er að hreinsun. Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum

Hálka og snjóþekja er víða á Austurlandi og einhver éljagangur. Það eru hálkublettir á köflum með suðausturströndinni.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.