Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.2.2019

12.2.2019 19:37

Færð á vegum

Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálkubletti. Flughálka er á Grafningsvegi.

Vesturland:  Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og enn nokkuð hvasst. Hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum.  Flughálka er á nokkrum útvegum í Borgarfirði og á Mýrum.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja á flestum leiðum, hvasst er og víða skafrenningur. Óveður er í Fljótum og hvasst all víða.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka á flestum leiðum og víða skafrenningur. Þæfingur er á Mývatnsöræfum og á Vopnafjarðarheiði og ófært er yfir Fljótsheiði en færð er fín í Köldukinn og Aðaldal sem hjáleið. Krapi er á Brekknaheiði.

Austurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum.

Suðausturland: Hálkublettir á flestum leiðum.  

Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálkublettir á útvegum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/