Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.2.2019
Ábending frá veðurfræðingi þriðjudaginn 12. febrúar kl. 08.30
Kröpp lægð fer í dag norður um vestanvert landið. Varað er við sviptingum í vindi saman með snjó og krapa frá um kl. 11. Einkum á Snæfellsnesi, sunnanverðum Vestfjörðum, Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og norður í land frá um kl. 11 og þar til síðdegis.
Lokað
Hvalfjarðargöng: Göngin eru lokuð vegna umferðaróhapps.
Hellisheiði er lokuð.
Færð á vegum
Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálkubletti. Flughálka er á Kjósarskarði, á Grafningsvegi og á milli Lyngdalsheiðar og Írafoss.
Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Flughálka er víða í uppsveitum Borgarfjarðar. Á Snæfellsnesi er flughálka er á mill Fróðárheiðar og Arnarstapa annars hálka eða snjóþekja og snjókoma. Óveður er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.
Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum og víða éljagangur eða snjókoma. Þæfingsfærð er á Kleifaheiði. Þungfært er á Mikladal og Hálfdán.
Norðurland: Hálka eða snjóþekja og snjókoma eða éljagangur á flestum leiðum. Flughálka er frá Hofsós að Ketilás.
Norðausturland: Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum. Flughálka er á Brekknaheiði.
Austurland: Hálka,hálkublettir eða snjóþekja á vegum. Flughálka er í kringum Fáskrúðsfjörð.
Suðausturland: Hálka eða hálkublettir á vegum.
Suðurland: Suðurlandsvegur er að mestu greiðfær en hálkublettir á öðrum leiðum.
Ábending um hálkuvarnir
Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/