Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.2.2019

12.2.2019 6:52

Snjóflóðahætta

Snjóflóðahætta er möguleg snemma í dag, þriðjudag á eftirfarandi vegum: Súðavíkurhlíð, Kirkjubólshlíð og Hvilftarströnd.

Færð á vegum

Suðvesturland: Víða eru vegir greiðfærir en eitthvað um hálkublettir. Hálka eru á Sandskeiði og  Þrengslum en hálka og þoka á Hellisheiði. Krapasnjór er á Mosfellsheiði en flughálka á Kjósarskarði.

Vesturland: Hálka eða snjóþekja á vegum og eitthvað um éljagang. Þæfingsfærð á Fróðárheiði. Snjóþekja og snjókoma er á norðanverðu Snæfellsnesi.

Vestfirðir: Hálka eða snjóþekja á flestum vegum. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði. Þröskuldum og Klettsháls. Snjókoma eða skafrenningur nokkuð víða.

Norðurland: Hálka eða snjóþekja og snjókoma eða éljagangur á flestum leiðum. Þæfingsfærð og snjókoma er á Öxnadalsheiði.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka og snjókoma og skafrenningur á flestum leiðum. Þæfingsfærð er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Flughálka er á Brekknaheiði og í Vopnafirði en ófært og stórhríð á Hófaskarði og Hálsum.  

Austurland: Hálka eða hálkublettir á vegum og éljagangur með ströndinni. Snjóþekja og snjókoma er á Fjarðarheiði.

Suðausturland: Hálka eða hálkublettir á vegum. Flughálka er á milli Jökulsárlóns og Kvískers.

Suðurland: Suðurlandsvegur er þjóðvegur 1 að mestu greiðfær en hálkublettir á öðrum leiðum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/