Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.12.2017

12.12.2017 12:46

Vinna við Miklubraut

Í dag, þriðjudaginn 12. desember, er verið að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut: Unnið er frá Snorrabraut til austurs í átt að Lönguhlíð fram eftir degi. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Færð og aðstæður

Það er krap á Mosfellsheiði, Lyngdalsheiði og á Þingvallasvæðinu. Á Suðurlandi eru annars víðast hvar aðeins hálkublettir en sums staðar er hált eða jafnvel flughált á einstaka vegi. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði.

Nokkur hálka er á Vesturlandi, einkum á fjallvegum en sums staðar hefur myndast ísing og þar er jafnvel flughált.  Hálka og snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum. Flughált er á Innstrandavegi og í Kollafirði. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.

Hálka eða hálkublettir eru flestum vegum á Norðurlandi og austur yfir öræfin.

Það er mikið autt á Héraði en hálka á Fjarðarheiði og Fagradal. Á Austfjörðum og með suðausturströndinni er hiti ýmist í kringum núllið eða í plús og  krapi eða hálka á vegum, jafnvel flughált á köflum.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.