Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.12.2017

12.12.2017 8:49

Færð og aðstæður

Það snjóar á Hellisheiði og eins á Mosfellsheiði og á Þingvallasvæðinu. Krapi eða snjóþekja er m.a. á Hellisheiði, Lyngdalsheiði og við Þingvelli en á Suðurlandi eru þó víðast hvar aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg greiðfært. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði en flughált í sunnanverðum Hvalfirði.

Nokkur hálka er á Vesturlandi einkum á fjallvegum en sums staðar hefur éljað og snjóþekja er m.a. á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er víðast nokkur hálka, snjóþekja eða krapi. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.

Hálka eða hálkublettir eru flestum vegum á Norðurlandi og austur yfir öræfin.

Það er mikið autt á Héraði en hálka á Fjarðarheiði og Fagradal. Á Austfjörðum og með suðausturströndinni er hiti ýmist í kringum núllið eða í plús og  krapi eða hálka á vegum, jafnvel flughált á kafla vestan Klausturs.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.