Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.12.2017

12.12.2017 7:32

Færð og aðstæður

Það snjóar á Hellisheiði og í Þrengslum og eins á Mosfellsheiði og á Þingvallasvæðinu. Krapi eða snjóþekja er m.a. á Hellisheiði, Lyngdalsheiði og við Þingvelli. Þæfingsfærð er hins vegar í Þrengslum, á Mosfellsheiði og Kjósarskarði en flughált í sunnanverðum Hvalfirði.

Nokkur hálka er á Vesturlandi einkum á fjallvegum en sums staðar éljar og snjóþekja er m.a. á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er víðast nokkur hálka, snjóþekja eða krapi. Hrafnseyrarheiði er ófær.

Hálka eða hálkublettir eru flestum vegum á Norðurlandi og sums staðar er verið að hreinsa vegi þar sem er snjóþekja eða þæfingur eftir nóttina.

Það er mikið autt á Héraði en hálka á Fjarðarheiði og Fagradal. Á Austfjörðum hefur víða éljað og þar er víðast hálka eða krapi á vegum. Með suðausturströndinni er hiti ýmist í kringum núllið eða í plús og  krapi á vegum suður í Öræfi en hált og jafnvel flughált þar fyrir vestan.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.