Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.12.2017

12.12.2017 22:00

Vinna við Miklubraut

Í dag, þriðjudaginn 12. desember, er verið að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut: Unnið er frá Snorrabraut til austurs í átt að Lönguhlíð fram eftir degi. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Reykjanesbraut en hálka á Suðurnesjum.

Á Suðurlandi eru víðast hvar aðeins hálkublettir en sums staðar er hált eða jafnvel flughált á einstaka vegi.

Nokkur hálka er á Vesturlandi, einkum á fjallvegum. Hálka og snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum. Flughált er í innanverðu Ísafjarðardjúpi,  á Ströndum og vestan meginn í Hrútafirði. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.

Hálka eða hálkublettir eru flestum vegum á Norðurlandi og austur yfir öræfin. Snjóþekja og snjókoma er á Öxnadalsheiði og flughálka og éljagangur í  Kinninni.  

Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fjarðarheiði en snjóþekja og snjókoma á Fagradal. Hálka og skafrenningur er  Vatnsskarð eystra. Á Austfjörðum og með suðausturströndinni er allvíða krapi eða hálka á vegum. Þæfingsfærð og snjókoma er á Breiðdalsheiði en ófært  um Öxi.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.