Umferðarþjónusta - Tilkynning - 12.10.2017
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi er hálka á nokkrum leiðum í uppsveitum Árnessýslu og á þjóðvegi 1 á milli Þjórsár og Hvolsvallar. Hálkublettir eru á Mosfellsheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Krapasnjór er á Hrafnseyrarheiði. Reykjanesbraut, nýtt hringtorg við Þjóðbraut
Í dag fimmtudaginn 12. október verður unnið við malbikun á nýju hringtorgi við Þjóðbraut. Umferð verður beint um hjáleiðir framhjá vinnusvæðinu.
Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Hálendisvegir
Færð á hálendisvegum hefur spillst og hafa margir þeirra orðið ófærir.
Við bendum vegfarendum á að fylgjast vel með færðarkortinu og veðurspá
ef þeir ætla inn á hálendið.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.