Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.8.2017

11.8.2017 8:11

Framkvæmdir

Í dag föstudaginn 11. ágúst er stefnt að því malbika á Hringvegi 1 í Borgarnesi (Borgarbraut) frá Sandvík að Snæfellsnesvegi  á 1200 m kafla báðar akreinar, enn unnið er á einni akrein í einu, lokað er með umferðarstýringu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan á framkvæmd stendur frá kl. 8:00 til kl. 21:00

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Múlagöng

Búast má við mikilli umferð um Múlagöngin um helgina og einhverjum umferðartöfum. Lögregla verður á staðnum og mun stýra umferð þegar þurfa þykir. Vegfarendur eru beðnir að taka tillit til þess og sýna þolinmæði.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér