Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.7.2018

11.7.2018 15:28

Lokun

Vegna uppsetningar vegriðs við Vallaveg (nr. 361) á Þingvöllum sem liggur af Þingvallavegi að Þingvallavatni verður þeim vegi lokað að degi til miðvikudag, fimmtudag og föstudag í þessari viku. Vallavegi verður lokað fyrir allri umferð í suðurenda hans við Þingvallaveg. Einnig verður lokað fyrir umferð fólksflutningabíla við Silfru en ökumenn lítilla bíla munu þó komast að veiðistöðum við vatnið.

Hópbifreiðar munu áfram geta ekið frá þjónustumiðstöð að bílastæði á Valhallarreit (P5) og ökumenn lítilla bíla munu komast að veiðistöðum við vatnið.

Ökumenn eru beðnir að virða merkingar við lokanirnar

Lokun á Ölfusárbrú við Selfoss

Vegna viðgerðar verður brúin yfir Ölfusá lokuð í viku um miðjan ágúst. Sjá nánar hér

Framkvæmdir

Fimmtudaginn 12. júlí er stefnt að því að malbika hringtorg í Grindavík við Gerðavelli og báðar akreinar á Víkurbraut sunnan við hringtorgið. Veginum og hringtorginu verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:30 til kl. 16:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Umferðartafir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir gætu orðið lítilsháttar umferðartafir í Breiðadalslegg (til/frá Önundarfirði) yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Umferðarstýring á Þingvöllum

Upplýsingar um umferðarstjórnun í tengslum við hátíðarfund Alþingis 18. júlí á Þingvöllum, sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.