Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.5.2018
Færð og aðstæður
Vetrarfærð er enn á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum eftir nóttina, krapi eða hálkublettir, raunar þæfingsfærð á Dynjandisheiði en þetta tekur hratt upp eftir hreinsun.
Einholtsvegur
Vegna ræsagerðar verður vegur 358-02, Einholtsvegur, lokaður frá 12-18 í dag, vestan við vegin að Kjarnholti.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.