Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.5.2018

11.5.2018 8:36

Færð og aðstæður

Það er krapi á Holtavörðuheiði og eins er vetrarfærð á mörgum fjallvegum á Vestfjörðum.

Einholtsvegur

Vegna ræsagerðar verður vegur 358-02, Einholtsvegur, lokaður frá 12-18 í dag, vestan við vegin að Kjarnholti.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.