Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum.
Það er hálka á Fróðárheiði og á sunnanverðu Snæfellsnesi en flughált og skafrenningur á Útnesvegi. Vegir á Vesturlandi eru annars mikið til greiðfærir þótt sums staðar séu hálkublettir.
Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og nokkuð víða skafrenningur.
Vegir eru nánast auðir við Húnaflóa en þar fyrir austan er víðast hvar hálka, snjóþekja og sumstaðar skafrenningur eða él.
Hálka og snjóþekja ásamt éljum eða skafrenningi er víða á Austurlandi. Vatnsskarð eystra er ófært í augnablikið en moksturstæki er komið á staðinn.
Greiðfært er á Suðausturlandi frá Hvalnesi suður um.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.