Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018

11.3.2018 21:37

Lokanir

Útnesvegur (574) er lokaður frá Búðum og að Hellissandi vegna veðurs. 

Fróðárheiði hefur verið lokað vegna veðurs. 

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálka eða hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum. 

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir sunnantil en meira um hálkubletti er norðar dregur. Krapi er á  sunnanverðu Snæfellsnesi. 

Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og sums staðar skafrenningur. Þæfingur er víða á fjallvegum en ófært er um Klettsháls. 

Vegir eru nánast auðir við Húnaflóa en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja.

Hálka og snjóþekja ásamt éljum eða skafrenningi er víða á Austurlandi en þæfingur er á Fjarðarheiði. Greiðfært er á Suðausturlandi frá Hvalnesi suður á Mýrdalssand en þar eru hálkublettir. 

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.