Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018
Lokun
Þjóðvegur 1 er lokaður við Iðjuvelli á Kirkjubæjarklaustri vegna umferðarslyss og er þar engin hjáleið.Færð og aðstæður
Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálka eða hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir sunnantil en meira um hálkubletti er norðar dregur. Krapi er á Útnesvegi fyrir jökul og eins á sunnanverðu Snæfellsnesi. Ófært er orðið milli Búða og Hellna og eins á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og sums staðar jafnvel talsverður skafrenningur. Þæfingur er á Klettshálsi.
Vegir eru nánast auðir við Húnaflóa en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja og sumstaðar ofankoma og skafrenningur.
Hálka og snjóþekja ásamt éljum eða skafrenningi er víða á Austurlandi en greiðfært er á Suðausturlandi frá Hvalnesi suður á Mýrdalssand en þar er éljagangur og hálkublettir.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.