Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018

11.3.2018 17:40

Lokun

Þjóðvegur 1 er lokaður við Iðjuvelli á Kirkjubæjarklaustri vegna umferðarslyss og er þar engin hjáleið. 

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum. 

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir sunnantil en meira um hálkubletti er norðar dregur. Krapi er á Útnesvegi og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Fróðárheiði er ófær. 

Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og sums staðar jafnvel talsverður skafrenningur. Þæfingur er á Klettshálsi. 

Vegir eru nánast auðir við Húnaflóa en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja og sumstaðar ofankoma og skafrenningur. Þæfingsfærð er á Þverárfjalli og Hófaskarði.

Hálka og snjóþekja ásamt éljum eða skafrenningi er víða á Austurlandi en greiðfært er á Suðausturlandi frá Hvalnesi suður á Mýrdalssand en þar er éljagangur og hálkublettir. 

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.