Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018
Færð og aðstæður
Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á köflum á Suðurnesjum.
Hálka eða snjóþekja er á Snæfellsnesi. Vegir á Vesturlandi eru mikið til greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum.
Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og nokkuð víða skafrenningur. Þæfingsfærð er víða eftir snjókomu í nótt en unnið er að hreinsun.
Á Norðurlandi vestra eru hálka eða hálkublettir en þar fyrir austan er víðast hvar hálka, snjóþekja og sumstaðar skafrenningur
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi. Vegir með suðausturströndinni eru greiðfærir.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.