Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.7.2018
Framkvæmdir
Í dag þriðjudaginn
10. júlí er stefnt að því að malbika akreinar á Gullinbrú. Þrengt verður í eina
akrein á meðan framkvæmdum stendur og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 09:00 og 17:00.
í kvöld þriðjudagskvöld og nótt 10.-11. júlí
er stefnt að því að malbika 3,7 km langan kafla á Akrafjallsvegi. Veginum
verður lokað, hjáleiðir og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á
framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 20:30 til kl. 07:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt miðvikudagsins 11. júlí.
Umferðarstýring á Þingvöllum
Upplýsingar um umferðarstjórnun í tengslum við hátíðarfund Alþingis 18. júlí á Þingvöllum, sjá nánar hérViðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.