Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.6.2017

10.6.2017 18:33

Krýsuvíkurvegur (42), framkvæmdir við nýtt hringtorg

Þann 10. júní 2017, hefjast framkvæmdir við nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og - Ásvallabraut (Klukkutorg).  Framkvæmdir munu standa yfir í sumar og er gert ráð fyrir að hringtorg verði tekið í notkun 1. september 2017.  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis.

Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.“

Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst.

Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.

Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).


Umferðartafir á Hringvegi

Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.

Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00  fram til 30. júní vegna framkvæmda.