Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.5.2018

10.5.2018 9:17

Færð og aðstæður

Vetraraðstæður eru á fjallvegum og víða á Vestfjörðum eins er krap og vindasamt en mokstur er í gangi, en annars eru allar aðalleiðir greiðfærar á landinu. Hálka er a Fróðár- og Holtavörðuheiði.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.