Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.5.2018

10.5.2018 0:51

Grjóthrun

Grjóthrun er á Siglufjarðarvegi og er fólk beðið að vera ekki á ferðinni þar.

Færð og aðstæður

Vetraraðstæður eru á fjallvegum á Vestfjörðum eins og krap og vindasamt en annars eru allar aðalleiðir greiðfærar á landinu.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.