Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.3.2018

10.3.2018 8:00

Færð og aðstæður

Hálka og éljagangur er á Reykjanesbraut og snjóþekja og þæfingur á Reykjanesi eftir snjókomu þar í nótt, annars eru vegir greiðfærir á Suðvesturlandi.

Á Vesturlandi eru vegir víðast greiðfærir eða í hálkublettum. Hálka, snjóþekja og éljagangur er á Snæfellsnesi. 

Hálka, snjóþekja eða hálkublettir eru allvíða á Vestfjörðum. Þæfingur er á Kleifaheiði og þungfært á Klettshálsi.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að miklu leyti auðir en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi. Vegir með suðausturströndinni eru greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.