Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.2.2019

10.2.2019 21:53

Ábendingar frá veðurfræðingi

10. feb. kl. 19:00

Á undan hitaskilum í fyrramálið, versnar eftir kl. 8 með skafrenningi. Frá kl. 10: 15-20 m/s með hríð og takmörkuðu skyggni frá Sandskeiði og austur fyrir fjall. Lægir og hlánar upp úr kl. 13 til 14. Eins í Þrengslum, Mosfellsheiði og á Lyngdalsheiði.   

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eru á Mosfellsheiði og Bláfjallavegi og hálka á Kjósarskarði og Krýsuvíkurvegi.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingur er í Haukadal og á Heydal.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þungfært eða þæfingur víða á Ströndum.

Norðurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja víðast hvar en þæfingur er á Hörgárdalsvegi og innst á Eyjafjarðarbraut. Þungfært er inn af Ólafsfirði. 

Norðausturland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar og einhver éljagangur. Ófært er um Hólasand. 

Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum aðalleiðum en sumstaðar þungfært á útvegum.

Suðausturland: Hálka, hálkublettir eða jafnvel greiðfært á flestum leiðum. Éljagangur er í Eldhrauni og austan Klausturs. 

Suðurland: Hálka eða hálkublettir nokkuð víða en sumstaðar jafnvel greiðfært.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/