Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.2.2019

10.2.2019 13:46

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eru á Mosfellsheiði og Bláfjallavegi og hálka á Kjósarskarði og Krýsuvíkurvegi.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingur er í Haukadal og á Heydal.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þungfært á köflum á Ströndum. - Lögregla aðstoðar nú flutningsaðila á Steingrímsfjarðarheiði við að ná upp flutningabíl sem hafði oltið út fyrir veg. Einhverjar tafir kunna að verða á meðan en reynt er að hleypa umferð framhjá í hollum.

Norðurland: Hringvegurinn er mikið til auður austur í Skagafjörð en hálka er á Öxnadalsheiði og við Eyjafjörð. Meiri hálka er á útvegum.

Norðausturland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar. Ófært er um Hólasand.

Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum aðalleiðum en sumstaðar þungfært eða ófært á sveitavegum.

Suðausturland: Hálkublettir eða jafnvel alveg autt á Hringveginum en hálka á útvegum.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er að heita má greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka á öðrum vegum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/