Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.2.2019

10.2.2019 11:22

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eru á Mosfellsheiði og Bláfjallavegi og hálka á Kjósarskarði og Krýsuvíkurvegi.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingur er á Skógarströnd, í Haukadal og á Heydal.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þungfært víða á Ströndum.

Norðurland: Hringvegurinn er mikið til auður austur í Skagafjörð en hálka er á Öxnadalsheiði og við Eyjafjörð. Meiri hálka er á útvegum.

Norðausturland: Hálka eða snjóþekja víðast hvar og sumstaðar éljar. Þungfært er innansveitar í Vopnafirði og ófært um Hólasand.

Austurland: Hálka eða snjóþekja á flestum aðalleiðum en allvíða þungfært eða ófært á sveitavegum. Þæfingsfærð er á Fjarðarheiði. Verið er að moka Borgarfjarðarveg og Vatnsskarð.

Suðausturland: Hálkublettir eða jafnvel alveg autt á Hringveginum en hálka á útvegum.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er að mestu greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.

Ábending um hálkuvarnir

Þegar kalt er í veðri og stífur vindur getur hálkuvörn bundist illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/