Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.2.2019

10.2.2019 9:43

Færð á vegum 

Suðvesturland: Víðast hvar greiðfært en hálkublettir eða hálka á nokkrum vegum.

Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingur er á Skógarströnd, í Haukadal og í Heydal.

Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Þungfært víða á Ströndum.

Norðurland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og eitthvað um éljagang. Þæfingsfærð er í Almenningum.

Norðausturland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar. Þungfært er yfir Vopnafjarðarheiði og innansveitar í Vopnafirði og ófært er um Hólasand.

Austurland: Hálka eða snjóþekja og einhver snjókoma. Þæfingsfærð og skafrenningur eru á Fjarðarheiði og þungfært er víða á Héraði en ófært er á Borgarfjarðarvegi norður af Eiðum, á Hróarstunguvegi og Skriðdal.

Suðausturland: Hálkublettir að mestu.

Suðurland: Þjóðvegur 1 er nokkuð greiðfær en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum.

Ábending um hálkuvarnir

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið  hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/