Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.12.2017
Krapastífla í Jökulsá á Fjöllum
Krapastífla er við brúna á Jökulsá á Fjöllum á þjóðvegi 1. Vegfarendur eru beðnir um að aka varlega þar sem flætt gæti yfir veg.
Færð og aðstæður
Gott ferðaveður er í flestum landshlutum en hálka, hálkublettir eða sjóþekja er á vegum og eitthvað um éljagang með norðausturströndinni. Þæfingur er á Öxi.Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.