Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.10.2017
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Möðrudalsöræfum.
Hálendisvegir
Færð á hálendisvegum hefur spillst og hafa margir þeirra orðið ófærir. Við bendum vegfarendum á að fylgjast vel með færðarkortinu ef planaðar eru ferðir inn á hálendið.
Þjóðbraut lokuð ofan Smiðjuvalla
Vegna vinnu við hringtorg í Reykjanesbæ er Þjóðbraut nú lokuð ofan Smiðjuvalla. Eðlileg umferð er á hringtorgi við Aðalgötu. Hjáleið er um Smiðjuvelli og Aðalgötu, eða Grænásveg. Verklok eru áætluð 10. október.Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.