Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.10.2017

10.10.2017 8:24

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Sandskeiði, Hellisheiði og á Mosfellsheiði og eins er ísing á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og ástæða til að fara varlega.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Mikladal og Hálfdán og hálka á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Hálkublettir eru einnig á Drangsnesvegi og vegum í kringum Hólmavík.

Hálkublettir eru á Möðrudalsöræfum.

Hálendisvegir

Færð á hálendisvegum hefur spillst og hafa margir þeirra orðið ófærir. Við bendum vegfarendum á að fylgjast vel með færðarkortinu ef planaðar eru ferðir inn á hálendið. 

Þjóðbraut lokuð ofan Smiðjuvalla

Vegna vinnu við hringtorg í Reykjanesbæ er Þjóðbraut nú lokuð ofan Smiðjuvalla. Eðlileg umferð er á hringtorgi við Aðalgötu. Hjáleið er um Smiðjuvelli og Aðalgötu, eða Grænásveg. Verklok eru áætluð 10. október. 

Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.