Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

7.5.2016 16:00

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði en hálkublettir og éljagangur eru á Hófaskarði og Hálsum, þæfingur er norður í Árneshrepp annars eru vegir greiðfærir að mestu um allt land.

Ófært er um Öxi.

Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér