Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Dynjandisheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Möðrudalsöræfum en hálkublettir og éljagangur eru á Hófaskarði og Hálsum annars eru vegir greiðfærir að mestu um allt land.
Ófært er um Öxi.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér