Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir. Hálka er á Holtavörðuheiði en hálkublettir eru á Bröttubrekku.
Á Vestfjörður er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum. Þæfingur er á Dynjandisheiði en hálkublettir á Hrafnseyrarheiði. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir. En élagangur og snjóþekja er á Siglufjarðarvegi og á Þverárfjalli en hálkublettir eru á Vatnsskarði.
Norðaustanlands er þæfingur á Tjörnesi, Hólasandi og á Mývatnsöræfum annars er snjóþekja eða hálkublettir mjög víða.
Á Austurlandi er þungfært á Háreksstaðaleið og Möðrudalsöræfum, þæfingur er á Vopnafjarðarheiði og Breiðdalsheiði. Snjóþekja á Fagradal og Fjarðarheiði aðrir vegir eru að mestu greiðfærir.
Ófært er um Öxi.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér