Umferðarþjónusta - Tilkynning
Ábendingar frá veðurfræðingi
Í kvöld kemur úr norðri enn einn bakkinn. Honum fylgir snjókoma og skafrenningur á Mývatns- og Möðrudalsöræfum í kvöld og nótt. Norðvestan vindur allt að 10-15 m/s og skefur í skafla á veginum. Bleytusnjór eða krapi verður víða á láglendi s.s. við Siglufjörð og Ólafsfjörð og eins með ströndinni við Húsavík og þar fyrir austan. Rofar mikið til snemma í fyrramálið.
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir.
Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum. Snjóþekja og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði og aðeins fært vetrarbúnum bílum. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir. En éljagangur og snjóþekja er með ströndinni.
Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en eitthvað er um snjóþekju eða hálkubletti. Snjóþekja er á Hólasandi og krapasnjór á Dettifossvegi. Éljagangur er með ströndinni.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Breiðdalsheiði og snjóþekja er á Öxi.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér