Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

6.5.2016 14:09

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Vatnaleið og á Fróðárheiði. 

Á Vestfjörður er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum.  Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði og aðeins fært vetrabúnum fjórhjóladrifsbílum, snjóþekja og skafrenningur er á Dynjandisheiði. Vegir á láglendi eru greiðfærir.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir.

Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en eitthvað er um snjóþekja eða hálkublettir. Snjóþekja er á Hólasandi og krapasnjór á Dettifossvegi. Víða er þoka.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Breiðdalsheiði, á Vatnsskarði eystra, á Vopnafjarðarheið og á  Möðrudalsöræfum.

Vegurinn um Öxi er lokaður.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér