Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland. Óveður er við Kjalarnes en greiðfært.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálka er á Holtavörðuheiði og hálkublettir eru á Bröttubrekku og Fróðárheiði. Óveður er sunnanmeginn á Snæfellsnesi.
Á Vestfjörður er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum en ófært er á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en snjóþekja er á Þverárfjalli en hálkublettir eru á Vatnsskarði.
Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en eitthvað er um snjóþekja eða hálkublettir. Éljagangur er mjög víða og skafrenningur. Ófært er á Mývatnsöræfum en þungfært er á Hólasandi.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Oddsskarði. Ófært á Hárekstaðarleið, Vopnafjarðarheið og á Möðrudalsöræfum.
Vegurinn um Öxi er lokaður
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér