Umferðarþjónusta - Tilkynning
Aðvörun
Þæfingur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði. Búið er að setja lokunarpóst fyrir en vel útbúnir bílar fá að fara. Vegfarendur sem eru á fólksbílum og með sumardekk eru beðnir að bíða meðan veður gengur yfir og fylgjast vel með upplýsingum um færð.
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland. Óveður er við Kjalarnes en greiðfært.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Óveður er sunnanmeginn á Snæfellsnesi.
Á Vestfjörður er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum en ófært er á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en snjóþekja er á Þverárfjalli en hálkublettir eru á Vatnsskarði.
Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en eitthvað er um snjóþekja eða þæfing. Éljagangur er mjög víða og skafrenningur.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en þæfingur er á Hárekstaðarleið, Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði og ekki fólksbíla fært. Hálkublettir eru á Fagradal og Oddsskarði en hálka á Fjarðarheiði.
Vegurinn um Öxi er lokaður
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér