Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Á Vestfjörður er snjóþekja á nokkru fjallvegum en þæfingur og skafrenningur er á Dynjandisheiði en ófært á Hrafnseyrarheiði. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálka er á Öxnadalsheiðið, hálkublettir eru á Þverárfjalli og á Vatnsskarði.
Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en eitthvað er um snjóþekja eða hálkubletti. Þæfingur er á Dettifossvegi en þungfært er á Sandvíkurheiði. Éljagangur er mjög víða.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en þungfært er á Hárekstaðarleið og Möðrudalsöræfum og þæfingur á Vopnafjarðarheiði og Breiðdalsheiði. Hálkublettir eru á Fagradal og Oddsskarði en snjóþekja á Fjarðarheiði.
Vegurinn um Öxi er lokaður
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér