Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

4.5.2016 16:02

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður-, Suðaustur- og Vesturlandi.

Á Vestfjörður eru hálkublettir og skafrenningur á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.  Vegir á láglendi eru greiðfærir.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um þoku.

Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en hálkublettir eru á Dettifossvegi.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Jökuldalsvegi efri. Éljagangur og krapi er á Oddsskarði.

Vegurinn um Öxi er lokaður.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér