Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður-, Suðaustur- og Vesturlandi.
Á Vestfjörður eru hálkublettir og skafrenningur á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um þoku.
Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en hálkublettir eru á Dettifossvegi.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Jökuldalsvegi efri. Éljagangur og hálkublettir eru á Oddsskarði.
Vegurinn um Öxi er lokaður.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér