Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

3.5.2016 16:38

Ábendingar frá veðurfræðingi

Þó veður hafi skánað mikið um norðvestanvert landið er engu að síður reiknað með að éljagangur verði drjúgur vestantil á Norðurlandi áfram í kvöld og fram á nóttina, en lagast mikið í fyrrmálið.   Einkum snjóar frá Blönduósi og yfir í Skagafjörð og norður á Siglufjörð.  Bleytusnjór eða krapi verður á láglendi, en fjúk á fjallvegunum.  Á Vestfjörðum verða áfram él og eins lágarenningur á fjallvegum til morguns.

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður-, Suðaustur- og Vesturlandi.

Snjóþekja eða hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum. Hálkublettir eru norður í Árneshrepp. Þæfingur og skafrenningur er á Hrafnseyrarheiði en þæfingur er á Dynjandisheiði.  Vegir á láglendi eru greiðfærir.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir á láglendi en eitthvað er um éljagang. Hálkublettir eru á Siglufjarðarvegi og í Norðurárdal en krapi á Vatnsskarði.

Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en hálkublettir eru á Hólasandi og í Dalsmynni. Ófært er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Jökuldalsvegi efri. Vegurinn um Öxi er ófær.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér